Nuddmeðferðir
STYRKJANDI KÍSILMEÐFERÐ
Fullkomið dekur fyrir líkama og sál, hrein orkugjöf úr íslenskri náttúru. Kísillinn djúphreinsar húðina, þéttir hana og styrkir. Meðferðin hefst með saltskrúbbi með einstakri blöndu Blue Lagoon salta og olía. Líkaminn er síðan vafinn í styrkjandi kísilvafning og fætur eru nuddaðir. Líkams- og andlitsnudd er hluti meðferðarinnar sem endar á nuddi í hársverði. Loks er kísilmaski og krem sem hentar þinni húðgerð borinn á andlit. Einstök meðferð sem hreinsar, styrkir og nærir húðina.
90 mín 16.200,-
120 mín 19.800,-
NÆRANDI ÞÖRUNGAMEÐFERÐ
Einstök meðferð sem vekur skilningarvitin. Nærandi og slakandi meðferð sem hefst með því að líkaminn er skrúbbaður með einstakri blöndu Blue Lagoon salta og olíu sem endurnýja efsta lag húðarinnar. Þá er líkaminn vafinn í nærandi Blue Lagoon þörungavafning og fætur nuddaðir. Meðferðin endar á slakandi Blue Lagoon nuddi fyrir andlit, hársvörð og líkama. Loks er andlitsmaski og nærandi krem borið á andlit. Ljúf meðferð sem hreinsar og nærir.
90 mín 16.200,-
120 mín 19.800,-
ENDURNÆRANDI SALTMEÐFERÐ
Einstök meðferð sem veitir jafnvægi á líkama og sál. Veitir húðinni nauðsynleg steinefni og gefur henni líflegt yfirbragð. Líkaminn er skrúbbaður með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum og olíum sem hreinsa og endurnæra. Þá er líkaminn vafinn í endurnærandi vafning Blue Lagoon salta. Meðferðin endar á Blue Lagoon nuddi fyrir andlit, hársvörð og líkama. Loks eru krem og andlitsmaski borin á húðina.
90 mín 16.200,-
120 mín 19.800,-
LAVA - DE LUXE SLÖKUNARMEÐFERÐ
Upplifðu einstaka ilmandi og freyðandi spa meðferð á sérhönnuðum blautbekk. Meðferðin hefst á ilmandi Bláa Lóns froðu sem borin er á allan líkamann blönduð lavender flögum. Heitri olíu er síðan dreypt á líkamann og hann allur skrúbbaður með fínmuldu íslensku hrauni. Að sturtu lokinni er endað á unaðslegu líkamsnuddi. Spennandi og öðruvísi meðferð sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Tilvalin meðferð fyrir tvo að njóta saman í sérstöku para herbergi.
90 mín 16.200,-
120 mín 19.800,-
SLAKANDI OG ENDURNÆRANDI LEIRMEÐFERÐ OG NUDD
Fullkomin hreinsun og slökun fyrir líkama og sál. Húðin öðlast innri ljóma og orku. Blue Lagoon kornamaski fjarlægir dauðar húðfrumur og undirbýr húðina fyrir djúphreinsun með Blue Lagoon leirmaska. Þá er borið á andlit og líkama Blue Lagoon hvítur kísill, hraunblandaður leir og grænn leir blandaður þörungum til djúphreinsunar, húðstyrkingar og næringar. Þú slakar á í 20 mínútur í sér hönnuðum leirgufuklefa, slökunin endar með mildu regni. Loks er leirinn skolaður af og meðferðinni lýkur með andlits- og líkamsnuddi.
90 mín 16.200,-
120 mín 19.800,-
SALTSKRÚBB DELUXE
Endurnærandi og hreinsandi meðferð fyrir allan líkamann. húðin er skrúbbuð með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum og olíum sem eykur blóðflæðið og gefur húðinni aukinn ljóma og fallegt yfirbragð. Meðferðinni lýkur með andlits- og líkamsnuddi. Unaðsleg meðferð sem veitir mikla slökun og gerir húðina silkimjúka.
50 mín 11.500,-
90 mín 15.200,-
FLJÓTANDI DJÚPSLÖKUN / NUDD
Sannkölluð draumameðferð sem felst í djúpri slökun í vatni með náttúrulegri Blue Lagoon saltlausn. Einstök upplifun fyrir líkama og sál. Slökunin er talin jafnast á við allt að átta tíma svefn. Tilvalin endurnærandi meðferð fyrir þá sem þjást af streitu og þreytu.
40 mín 6.900,- (5.400,- á mann ef 2 saman )
Fljótandi djúpslökun og nudd:
100 mín 15.900,- (14.900,- á mann ef 2 saman)
KÍSIL LEIRMEÐFERÐ
Í þessari einstöku meðferð bera gestir hvítan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
20 mín 5.900,- ( 4.900,- á mann ef 2 saman)
KLASSÍSKT HEILDRÆNT NUDD (HEILSUNUDD)
Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Veitir góða slökun og vellíðan.
50 mín 9.900,-
80 mín 13.900,-
SLÖKUNARNUDD DELUXE
Unaðslegt, slakandi Blue Lagoon heilnudd. Nuddað er með steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og sérhannaðri Blue Lagoon nuddolíu sem inniheldur mildan og hreinan ilm. Eykur súrefnis- og blóðflæði til húðarinnar. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir vellíðan og jafnvægi.
50 mín 9.900,-
80 mín 13.900,-
ÍÞRÓTTANUDD
Nudd sem hentar sérstaklega vel fyrir þá sem stunda íþróttir.
Dregur úr þreytu, bólgum og stífum vöðvum. Eykur liðleika.
25 mín 5.900,-
PARTANUDD (axlir, háls, höfuð og hársvörður eða í bland)
Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum.
25 mín 5.900,-
MEÐGÖNGUNUDD
Heilnudd aðlagað verðandi móður á hvaða tímabili meðgöngunnar sem er. Dregur úr spennu og verkjum í líkamanum. Róar, veitir vellíðan og slökun. Nuddað er á sérstökum meðgöngubekk.
50 mín 9.900,-
80 mín 13.900,-
Innifalið í öllum meðferðum er aðgangur að heilsulindinni þar sem er heitur pottur og slökunarrými. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar annar með jarðsjó ásamt saunu og blautgufu. Gestir fá einnig handklæði og slopp.
bluelagoonspa(at)bluelagoonspa.is eða hringja í síma 414 4004. Blue Lagoon Spa í Hreyfingu Glæsibæ - 104 Reykjavík
ATH! MEÐLIMIR HREYFINGAR FÁ 20% AFSLÁTT AF SNYRTI-, NUDD- OG SPAMEÐFERÐURM.
