Dekur fyrir tvo
KÍSIL LEIRMEÐFERÐ
Í þessari einstöku meðferð bera gestir hvítan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
20 mín 4.900,- á mann ef 2 saman
FLJÓTANDI DJÚPSLÖKUN
Blue lagoon spa býður upp á fljótandi djúpslökun einnar sinnar tegundar á Íslandi. Sannkölluð draumameðferð sem felst í djúpri slökun í vatni með náttúrulegri Blue Lagoon saltlausn. Einstök upplifun fyrir líkama og sál. Slökunin er talin jafnast á við allt að átta tíma svefn. Tilvalin endurnærandi meðferð fyrir þá sem þjást af streitu og þreytu.
5.400,- á mann ef 2 saman
PARANUDD
Hægt er að njóta þess að fara saman í nudd í sérstöku para herbergi hjá Blue Lagoon spa.
SLÖKUNARNUDD DELUXE
Unaðslegt, slakandi Blue Lagoon heilnudd. Nuddað er með steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og sérhannaðri Blue Lagoon nuddolíu sem inniheldur mildan og hreinan ilm. Eykur súrefnis- og blóðflæði til húðarinnar. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir vellíðan og jafnvægi.
50 mín 9.900,- á mann
80 mín 13.900,- á mann
LAVA - DELUXE SLÖKUNARMEÐFERÐ
Upplifðu einstaka ilmandi og freyðandi spa meðferð á sérhönnuðum blautbekk. Meðferðin hefst á ilmandi Bláa Lóns froðu sem borin er á allan líkamann blönduð lavender flögum. Heitri olíu er síðan dreypt á líkamann og hann allur skrúbbaður með fínmuldu íslensku hrauni. Að sturtu lokinni er endað á unaðslegu líkamsnuddi. Spennandi og öðruvísi meðferð sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Tilvalin meðferð fyrir tvo að njóta saman í sérstöku para herbergi.
90 mín 16.200,- á mann
120 mín 19.800,- á mann
DEKUR FYRIR TVO - TILBOÐ I
FLJÓTANDI DJÚPSLÖKUN OG NUDD
Sannkölluð draumameðferð sem felst í djúpri slökun í vatni með náttúrulegri Blue Lagoon saltlausn. Einstök upplifun fyrir líkama og sál. Slökunin er talin jafnast á við allt að átta tíma svefn. Tilvalin endurnærandi meðferð fyrir þá sem þjást af streitu og þreytu.
Eftir 40 mínútna fljótandi djúpslökun er farið beint í unaðslegt, slakandi Blue Lagoon 50 mín heilnudd. Nuddað er með steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og sérhannaðri Blue Lagoon nuddolíu sem inniheldur mildan og hreinan ilm. Eykur súrefnis- og blóðflæði til húðarinnar. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir vellíðan og jafnvægi.
Verð aðeins 12.800 kr á mann
DEKUR FYRIR TVO - TILBOÐ II
KÍSIL LEIRMEÐFERÐ OG SLÖKUNARNUDD DELUXE
Í þessari einstöku meðferð bera gestir hvítan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð. Að kísilleirmeðferðinni lokinni er endað á unaðslegu slökunarnuddi. Nuddað er með steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og sérhannaðri Blue Lagoon nuddolíu sem inniheldur mildan og hreinan ilm. Eykur súrefnis- og blóðflæði til húðarinnar. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir vellíðan og jafnvægi.
50 mín 12.900 á mann
80 mín 16.900 á mann
Innifalið í öllum dekurpökkum er aðgangur að heilsulindinni þar sem er heitur pottur og slökunarrými. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar annar með jarðsjó ásamt saunu og blautgufu. Gestir fá einnig handklæði og slopp.
Hringdu núna í síma 414 4004 eða sendu tölvupóst á bluelagoonspa@bluelagoonspa.is og pantaðu einstakt dekur. Blue Lagoon Spa í Hreyfingu Glæsibæ - 104 Reykjavík

