Andlitsmeðferðir

BLUE LAGOON ANDLITSMEÐFERÐIR
Meðferðirnar eru sannkallað dekur. Þær eru hannaðar með tilliti til ólíkra húðtegunda, til að mæta mismunandi þörfum og lífsstíl hvers og eins. Í meðferðunum eru notaðar Blue Lagoon húðvörur sem innihalda einstök náttúruleg virk efni Blue Lagoon jarðsjávarins, kísil, sölt og þörunga. Meðferðirnar felast í hreinsun, næringu, róandi og slakandi nuddi sem örvar blóðflæði og starfsemi húðarinnar. Endurnærir húðina, veitir henni orku og ljóma.

Anti-aging & lifting
Lyftir og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Örvar nýmyndun á kollageni og veitir nauðsynlegan raka og næringu. Fyrir þroskaða húð.

Hydrating & destressing
Rakagefandi & dregur úr streitu. Styrkir ysta varnarlag húðarinnar. Öflug rakameðferð sem veitir húðinni líflegt yfirbragð. Fyrir þurra og venjulega húð.

Purifying & detoxifying
Áhrifarík djúphreinsun. Hentar sérstaklega vel fyrir húð sem þarfnast hreinsunar. Eykur ljóma húðarinnar. Fyrir blandaða og þurra húð.

30 mín (smábað)                                         6.900,-
60 mín (nudd og maski)                             8.900,-
75 mín (andlitsbað)                                   10.500,-
90 mín (andlitsbað DeLuxe)                    14.900,-

Andlitsbað DeLuxe inniheldur einnig dekur fyrir hendur og handleggi. Djúphreinsun, nudd, kísilmaski og nærandi Blue Lagoon krem.

 HÚÐHREINSUN
Einstök meðferð sem hreinsar og slípar yfirborð húðarinnar. Húðin öðlast hreint og matt yfirbragð.
60 mín                                                             7.700,-

Innifalið í öllum meðferðum er aðgangur að heilsulindinni þar sem er heitur pottur og slökunarrými. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar annar með jarðsjó ásamt saunu og blautgufu. Gestir fá einnig handklæði og slopp.

Bókanir
Bókaðu tíma í Blue Lagoon Spa með því að senda tölvupóst á 
bluelagoonspa(at)bluelagoonspa.is eða hringja í síma 414 4004.
Blue Lagoon Spa í Hreyfingu Glæsibæ - 104 Reykjavík

ATH! MEÐLIMIR HREYFINGAR FÁ 20% AFSLÁTT AF SNYRTI-, NUDD- OG SPAMEÐFERÐUM.